Íslensk yfirvöld hylltu Helfararafneitara

og skammast sín ekkert fyrir það. Enda eru margir helfararafneitarar til á Íslandi.

Sósíalistar og austantjaldsþjóðir gátu áratugum saman ekki talað eða ritað um helför gyðinga. Hún var nefnilega hluti af af örlögum öreiganna undan ofríki Hitlers og nasismans. Gyðinga mátti ekki nefna sérstaklega.

Til eru vinstri menn á Íslandi sem styðja ofbeldisstjórnir og -ríki, sem afneita því að helförin hefði átt sér stað. Til hafa verið Íslenskir utanríkisráðherrar og önnur stórmenni, sem heimtuðu að Ísraelsmenn og gyðingar minntust ekki á helförina. Það var kölluð misnotkun á örlögum gyðinga (öreiganna). Það er því ekkert ónáttúrulegt fyrir stjórnvöld í slíku ríki að láta embættismenn sína sitja undir hatursræðu brjálaðs einræðisherra frá Íran - og klappa eins og fífl undir ræðu sem ekki var þýdd.

Ég mæli ég með því að menn lesi þessa frábæru grein Alans Dershowitz, sem þorir að sýna Amadinejad og áhangendum hans, hvað úti frýs.

dershdurban
Prófessor Dershowitz fjarlægður af svissnesku osta-, banka- og súkkulaðileyniþjónustunni. Agent Swiss Miss Emmenthaler til vinstri á myndinni, Banco Heimlichkeit til hægri og Choco Toblerone fyrir aftan Dershowitz.

.... en Ísland er enn hryðjuverkaríki

 

Þessi ríki lýstu í gær frati á Amedinejad, hatur og öfga:

Ríki í ESB: 

Austurríki, Belgía, Stóra Bretland, Búlgaría, Kýpur, Tjekkland (sem eru alveg búnir að yfirgefa ráðstefnuna), Damörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Ungverjaland, Írland, Lettland, Litháen, Luxemburg, Malta, Portúgal, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Svíþjóð,

• Einnig:

Marokkó, St. Kitts and Nevis.

Ísland, sem lét einhverja möppukauða úr utanríkisráðuneytinu hlusta gyðingahatrið í leiðtoga Írans, er enn hryðjuverkaríki. Það er leiðinleg staðreynd. 


Þá fengu Danir nóg

 

Farvel til fordomme

Danir, sem voru í vanda með að vita hvort þeir ættu að vera, eða ekki, ákváðu í dag að yfirgefa hatursteiti öfgaþjóðanna. Hvað gera Íslendingar? Sátu þeir og sleiktu á sér tærnar? Já, það hefur verið staðfest, og þeir sleiktu líka tærnar á Amadinejad.


Nú fá menn það sem þeir styðja

Og íslensk stjórnvöld styðja þennan ósóma með setu sinni ráðstefnunni!

mahmoud-ahmadinejad

 


mbl.is Frakkar: Óréttlætanlegur hatursáróður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér hefur verið mótmælt

 

Já, hér hefur verið mótmælt.

En Íslendingar hafa líklega verið uppteknari við að setja á sig gul, rauð og græn armbindi og kasta skyri í Alþingishúsið í stað þess að sletta því á illmennin sem settu okkur á hvínandi kúpuna.

Sjá enn fremur hér: http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/858014/


mbl.is Þrír Íslendingar á Durban II ráðstefnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkjamenn taka ekki þátt

Obama

Nýjustu fréttir

Bandarísk stjórnvöld, með Hillary Clinton í fararbroddi, hafa ákveðið að taka ekki þátt í Durban II ráðstefnunni í Genf.  Stjórn Obama skoðaði málið og fékk vitrun. Ráðstefnan stefnir í að verða fórnarhátíð mannréttinda og stökkpallur fyrir yfirgang ríkja sem aðhyllast öfgastjórn, sem æ fleiri kjánar á Vesturlöndum eru veikir fyrir.

Sjá hér  og hér  og hér.

Vonandi er að fleiri sjái nú ljósið. Ráðstefnunni í Genf 20.-24. apríl í ár er stjórnað að öfgastjórnum sem vilja skerða mannréttindi. Nú síðast lagði undirbúningsfundur blessun sína yfir mannréttindabrot gegn samkynhneigðum. Ráðstefnan á líka að nota til að trampa á Ísraelsríki.


Swiss Miss

 
Hijab-Micheline_Calmy-rey-SwissFM

Ef þið eruð efins, er EFTA enn til, og Ísland situr í EFTA og það gerir Sviss líka ásamt Noregi og Liechtenstein. Oft er gert mikið úr litlu í EFTA. Sértaklega eru það utanríkisráðherrar þriggja þessara landa sem eru áberandi dömur. Jú, á Íslandi, í Sviss og í Liechtenstein eru utanríkisráðherrarnir kvenskörungar. Ekki skilja mig rangt, ég hef ekkert á móti konum í slíkum embættum, en ef þær og stefnumál þeirra eru út í hött, eiga þær gangrýni skilið eins og karlar í svipuðum embættum.

Eyðsluklóin okkar á Íslandi, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem vill sitja í óstarfhæfu ráði hjá SÞ, sama hvað það kostar, sendist nú um heiminn og sækir stuðning til setu lands okkar hjá máttarstólpum hryðjuverka, t.d. honum Assad á Sýrlandi. Ekki er hægt að segja að konan sé alþýðleg, því gagnrýnin á hana og Öryggisráðsórana í henni sem birtast á bloggum almúgans virðast renna af henni eins og vatn af straumönd.

Í Sviss sitja þeir uppi með trönu, sem heitir Micheline Calmy-Rey (sjá mynd hér fyrir ofan og neðan), sem er á svipuðu róli og Ingibjörg í pólitíkinni.  Hún blandar sér þó ekki  í málefni annarra ráðuneyta heima fyrir eins og okkar utanríkisráðherra. Calmy-Rey er þekkt fyrir ýmsar uppákomur. Hún hefur farið til Íran og gert samning við stjórnvöld þar um gaskaup. Hún fékk góðan díl og þakkaði  fyrir sig með því að stinga upp á því að bjóða Írönum til Sviss til að ræða um Helförina, sem þeir afneita á fullu eins og tilvist Ísraelsríkis.  Ekki voru kollegar hennar i Sviss eins fljótir og hressir á sínum tíma, er þeir þurftu að greina frá fjármagni sem þeir rændu frá gyðingum í stríðinu.

calmy
Sumir segja að þetta sé Calmy-Rey - Hvað stendur á bak við haus kerlu?
micheline

 

Nú hefur Calmy-Rey gert hana Ingibjörgu okkar að skátastelpu. Í ræðu, sem Calmy-Rey hélt í síðustu viku, stakk hún upp á því, að ræða þyrfti við Osama bin -Laden. "[S]hould we seek dialogue without discrimination - even if it means sitting down with Osama Bin Laden?" Sjáið alla ræðuna hér á ensku.  

Þetta vakti mikla athygli og forundran í hinum frönskumælandi heimi. Venjulegt alþýðufólk, og bloggarar sem skrifa á frönsku, hafa líklega ekki átt orð til að lýsa skömm sinni á yfirstéttarkratanum Calmy-Rey.

Svissnesk yfirvöld fóru í baklás eins og þeir oft gera og kenndu frönsku fréttastofunni AFP um að taka orð ráðherrans úr samhengi.

Calmy-Rey veldur miklum vanda fyrir Sviss vegna áráttu sinnar að ræða við alls kyns glæpa- og hryðjuverkasamtök. Þetta katastrófukvendi (femme fatale) sækist greinilega eftir náveru við hættulega morðingja.  Hvaða mannaval ætli Ingibjörg hitti fyrir í Öryggisráðinu, þegar Ísland fer að starfa þar?  Það get ég sagt Ingibjörgu. Fullt  af liði sem segir "Condemn Israel" og svo einhverja bergrisa sem segja "Veto". There is nothing little Imba can do about that. Ef hún kemst í Öryggisráðið, mun hún sitja þar eins og illa gerður hlutur þangað til öryggið fer. En hver borgar reikninginn? Það gerir fólkið eins og reglan segir í góðum alþýðulýðveldum.

Munið mótmælin gegn Durban II ráðstefnunni

Kveðja Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson


Mótmælum Durban II

durban i flyer

Þessi mynd er af miða sem dreift var meðal "frelsisvina" á ráðstefnunni gegn kynþáttafordómum í Durban í Suður-Afríku árið 2001. Níðingshátturinn, hópæsingin og hatrið sem einkenndi ráðstefnuna í Durban virðist eiga að endurtaka í Genfarborg árið 2009. Ráðstefnan í Genf í mars á næsta ári gengur almennt undir heitinu Durban II, þar sem hún er endurvakning eða áframhald ráðstefnu (UN World Conference against Racism) á vegum SÞ til að stemma stigu við kynþáttahatri og fordómum í heiminum. Það eina sem kom út úr þeirri ráðstefnu var hatur, og fyrst og fremst hatur gegn Ísraelsríki, sem kennt var um allt sem miður fer í heiminum.  Í Durban syrgðu menn ósigur Hitlers sárt.

Nýlega var haldin ráðstefna í Abujaborg í Nígeríu, þar sem menn voru að undirbúa ráðstefnuna sem halda á í Genf á næsta ári. Ekki lofaði forráðstefna í Abuja góðu frekar en aðrar undirbúningsráðstefnur sem farið hafa fram á þessu ári og fyrri ár. í Ajuba áttu menn að ræða vandamál varðandi kynþáttafordóma í Afríku, en varla var rætt um neitt annað en fjandmanninn, Ísraelsríki, og þann vanda sem Ísrael skapar að sögn fyrir þjóðir heimsins. Deilt var á rangt land í rangri heimsálfu. Umsjónamaður þessarar mótmælasíðu skrifaði um þetta pistil sem hann kallaði Afríka er staurblind.

Það sem einnig einkenndi ráðstefnuna í Abuja í Nígeríu var, að ýmsar þjóðir múslíma höfðu þar töglin og hagldirnar, og í ljós kom að þeir ætla sér að nota ráðstefnuna á næsta ári til að koma ýmsu inn í alþjóðalög sem þeir brenna fyrir. Gagnrýni á trúarbrögð og „guðlast" vilja þeir banna með alþjóðasáttmálum og vilja koma í veg fyrir of mikla gagnrýni og aukið lýðræði, sem er auðvitað versti galli aðalfjandans, þ.e.a.s. vestrænna landa og Ísraels. Gallar hins íslamska heims, þjóðarmorð í Darfúr, morð og skálmöld í Afríku, hryðjuverk o.s.fr. þögðu menn þunnu hljóði yfir í höfuðborg Nígeríu. Aðalfjandinn var BNA og Ísrael.

Fyrr á árinu reyndu múslímaþjóðir, sem á einn eða annan hátt hafa tengst verstu hryðjuverkum gegn Vesturlöndum og öðrum öfgum, með yfirgangi, hótunum, að útiloka samtök gyðinga og stuðningsmanna Ísraels í að taka þátt í ráðstefnunni. Hér getið þið horft á farsann:

 

Og hér getið þið horft á 2. hluta upptökunnar. Á þessari mótmælasíðu er hægt að lesa allt um duttlunga þeirra sem hertekið hafa Durban II ráðstefnuna. 

Þenkjandi mönnum um allan heim er um og ó og sjá vá fyrir dyrum ef sama vitleysan, eða það sem verra er, verður niðurstaða ráðstefnunnar í Genf á næsta ári. Nokkrar þjóðir hafa íhugað að draga sig úr samstarfinu í tengslum við ráðstefnuna eða að taka ekki þétt í henni. Kanada ákvað í janúar 2008 að hætta við að taka þátt.

Mannréttindaráð SÞ hélt enn einn undirbúningsfund í síðustu viku. Lítið annað kom út honum, sem gæti bent til annars en að ráðstefnan í Genf um kynþáttafordóma verði notuð til að viðra fordóma gegn Ísrael, Vesturlöndum, öðrum trúarbrögðum en Íslam og öllum þeim eða því sem ekki eru öfgamúslímum þóknanlegt. Sjáið hvað danski stjórnmálamaðurinn Naser Khader sagði á ráðstefnunni þann 18. september 2008.

Litla Ísland var á svipaðri undirbúningsráðstefnu í Genf í fyrra og „reyndi að leika hið mikla hlutverk sitt á meðal þjóðanna", eins og utanríkisráðherra okkar og forseti leggja svo mikla áherslu á þegar þau hringsólast um heiminn í ævintýraferðum sínum. Í ágúst 2006 lagði Ísland til orðalagsbreytingu á tillögu frá EBE sem Egyptar og aðrar þjóðir Múslima höfðu tryllst út af, vegna þess að tillagan gat eyðilagt áform ýmissa ríkja um að gera ráðstefnuna að endurtekningu á hatursráðstefnunni í Durban árið 2001. Tillögu Íslands var líka hafnað af múslímskum löndum.  Maður verður að spyrja: Eru íslenskir diplómatar að sýna "hlutverk okkar á meðal þjóðanna" með því að þjónkast við óferjandi lýðræðismorðingja og öfgaríki með innskotum á tilgangslausum innskotssetninum, sem þeir halda að leysi einhvern vanda?

Samkvæmt Félagi Sameinuðu Þjóðanna á Íslandier það stefna Íslands að feta í fótspor Durban I ráðstefnunnar:"Áherslur Íslands: Ísland mun halda áfram að styðja aðgerðir í baráttunni gegn kynþáttafordómum og m.a. tryggja framkvæmd alþjóðasamningsins um útrýmingu alls kynþáttamisréttis ásamt því að styðja framkvæmd lokaskjala Durban-ráðstefnunnar.  Ísland hefur ávallt greitt atkvæði með ályktun þriðju nefndar um framkvæmd og eftirfylgni Durban- ráðstefnunnar." Í bæklingi Utanríkisráðuneytisins um mannréttindi er þetta sagt á svipaðan hátt (á bls. 16). Ætli blessað fólkið í Félagi Sameinuðu Þjóðanna og Utanríkisráðuneytinu stefni að því að endurtaka sömu mistökin og á Durban ráðstefnunni, þar sem kynþáttahatur og fordómar voru leiðarljósið í stað baráttunnar gegn þeim ósóma? Það er verið að eyðileggja Sameinuðu Þjóðirnar, og lönd, sem Ísland sækir stuðning sinn til við fyrirhugaða setu sína í Öryggisráði SÞ, láta verst.

Shake Assad
Sýrlendingar reyna að koma í veg fyrir þátttöku hópa sem styðja Ísraelsríki og
grundvallarlýðræði á Durban II ráðstefnunni. Styður einræðisríkið Sýrland setu Íslands í Öryggisráðinu?

 

Æ fleiri múslímar taka afstöðu gegn hinni válegu þróun á meðal trúbræðra sinna og gegn yfirganginum og heimsvaldastefnu múslíma sem kemur svo glöggt í ljós í tengslum við undirbúning Durban II ráðstefnunnar. En þeir sem mótmæla eru eins og dropi í hafinu. Hatur og fordómar sameinar hins vegar sjálfsútnefnda friðarpostula og rugluhúmanista á Vesturlöndum og öfgamúslíma gegn sameiginlegum fjandmönnum og heilagri gagnrýni á vondu Vesturlöndin og hið "vonda ríki Ísrael", virðist ætla að verða annað þemað í Genf á næsta ári. Hitt er sameiginlegt ákall öfgamanna um afnám ýmissa grundvallarmannréttinda.

Þið, sem ekki viljið sætta ykkur við þá þróun að ráðstefna um baráttu gegn fordómum og kynþáttahatri sé notuð til að fordæma þjóðir og minnihluta, látið rödd ykkar hljóma. Skrifið undir íslensk mótmæli gegn Durban II ráðstefnunni og hvetjið íslensk stjórnvöld að hætta við þátttöku í skrípaleiknum í Genf. Í dálkinum til vinstri getið þið lesið um mótmæli í öðrum löndum og hvað fróðir menn hafa til málanna að leggja. Sömuleiðis getið þið séð hvernig þið getið sent mótmæli ykkar.

Hér er öllum sem geta nafns leyfilegt að koma með athugasemdir, en þær eru á eigin ábyrgð og verður ekki nauðsynlega svarað.  

virðingarfyllst,

Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband